31.07.18 - 11:24
Arnar Daði Arnarsson
Unnar Már í Reyni S. (Staðfest)

Unnar Már til hægri í baráttunni við Kenneth Hogg.

Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson

Unnar Már Unnarsson hefur gengið til liðs við Reyni S. í 4. deildinni frá Njarðvík.
Unnar hefur aðeins leikið tvo leiki með Njarðvíkinum í sumar en hann hefur nú ákveðið að taka slaginn með Reyni sem eru á toppi B-riðils í 4. deildinni.

Unnar er uppalinn í Keflavík og lék hann með liðinu í Pepsi-deildinni tímabilin 2014 og 2015. Hann lék síðan með Víði í 2. deildinni síðasta sumar.
Reynismenn eru með 28 stig á toppi B-riðils en Skallagrímur eru í 2. sæti með 24 stig. Reynir mætir Hvíta Riddaranum annað kvöld og er Unnar orðinn löglegur með liðinu fyrir þann leik.