31.07.18 - 21:02
Ívan Guðjón Baldursson
Vrsaljko til Inter (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Inter er búið að staðfesta komu Sime Vrsaljko til félagsins frá Atletico Madrid.
Vrsaljko kemur á lánssamning sem Inter greiðir 7 milljónir evra fyrir. Inter þarf svo að bæta við 18 milljónum til að kaupa varnarmanninn.
Vrsaljko er 26 ára hægri bakvörður og var fastamaður í byrjunarliði Króata sem nældi sér í silfurverðlaun á heimsmeistaramótinu í Rússlandi.
Inter hefur átt mjög gott sumar á leikmannamarkaðinum og er búið að krækja í leikmenn á borð við Radja Nainggolan, Stefan De Vrij og Lautaro Martinez.
Talið er að Atletico sé að næla sér í Santiago Arias frá PSV Eindhoven til að fylla í skarðið.