Fotbolti.net
31.07.19 - 15:40
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Boateng til Fiorentina (Staðfest)

Boateng til Fiorentina.

Boateng til Fiorentina.

Canon

Mynd: Getty Images

Fiorentina hefur keypt sóknarmanninn Kevin-Prince Boateng frá Sassuolo en hann hefur gert tveggja ára samning.

Þessi 32 ára reynslumikli leikmaður hefur spilað fyrir Tottenham Hotspur, Borussia Dortmund, Schalke, Eintracht Frankfurt og Milan en hann vann Ítalíumeistaratitilinn með síðastnefnda liðinu.

Boateng skoraði fimm mörk í fimmtán leikjum hjá Sassuolo á síðasta tímabili áður en hann var lánaður til Barcelona þar sem hann spilaði fjóra leiki.

Fiorentina hafnaði í 16. sæti ítölsku A-deildarinnar en Vincenzo Montella tók við stjórnartaumunum í apríl.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.