31.07.19 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Frá Östersund til Huddersfield (Staðfest)

David Webb tekur við sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Huddersfield

Mynd: Heimasíða Östersund

Enska B-deildarfélagið Huddersfield Town tilkynnti í dag nýjan yfirmann knattspyrnumála en David Webb tekur við starfinu. Hann kemur frá sænska félaginu Östersund.
Webb hefur starfað hjá mörgum félögum á Englandi en þar má nefna Crystal Palace, Southampton, Bournemouth og Tottenham.
Hann hefur uppgötvað leikmenn á borð við Wilfried Zaha, Callum Wilson, Harry Winks, Dele Alli og þá lagði hann til að Tottenham myndi kaupa Song Heung-Min frá Bayer Leverkusen.
Webb hefur starfað hjá sænska félaginu Östersund frá árinu 2018 en þá komst liðið í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar.
Hann starfaði hjá Östersund sem tæknilegur ráðgjafi en nú er hann kominn til starfa hjá Huddersfield Town og mun starfa þar sem yfirmaður knattspyrnumála.
Huddersfield féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og mun því leika í B-deildinni.

🖊️ #htafc can confirm that David Webb will join the Club as Head of Football Operations on Monday 19 August 2019.
— Huddersfield Town (@htafc) July 30, 2019
Webb will join the Club from Swedish top-flight side @ofk_1996, where he has held the role of Technical Director since October 2018.