Fotbolti.net
31.07.19 - 16:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

HK kaupir Birni Snæ af Val (Staðfest)

HK kaupir Birni Snæ af Val (Staðfest)
Canon

Mynd: HK

HK er búið að kaupa Birni Snæ Ingason af Val. Þetta segir í tilkynningu frá HK á Facebook-síðu félagsins.
Birnir Snær skrifar undir samning við HK til ársins 2022.

Hann gekk til liðs við Val frá Fjölni fyrir tímabilið, en fékk fá tækifæri. Hann fær væntanlega að spreyta sig meira með HK.

Birnir Snær kom inn á hjá Val gegn HK fyrr á tímabilinu og skoraði þá sigurmark Vals á síðustu stundu.

„Birnir Snær mun koma til með að styrkja leikmannahóp HK og er mikill fengur fyrir HK að fá þennan öfluga leikmann til liðs við sig. Birnir Snær hefur leikið 74 leiki í efstu deild og skorað 13 mörk," segir í tilkynningu HK.

HK-ingar hafa verið á góðu róli í Pepsi Max-deildinni í sumar. Liðið er í áttunda sæti með með 18 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.