31.07.19 - 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jason Van Achteren í Selfoss (Staðfest)

Selfyssingar styrkja sig.

Mynd: Fótbolti.net - Arnar Helgi Magnússon

Selfoss hefur bætt við sig leikmanni að nafni Jason Van Achteren. Hann er fæddur árið 1992 og er frá Belgíu.
Hann hefur verið að leika í Bandaríkjunum en mun núna reyna fyrir sér í 2. deildinni á Íslandi.
Jason er stór og stæðilegur varnarsinnaður miðjumaður.
Selfoss er í baráttu um að komast upp úr 2. deild karla. Liðið er sem stendur í þriðja sæti með 23 stig, tveimur stigum frá toppliði Leiknis Fáskrúðsfjarðar.
Það fer fram heil umferð í 2. deildinni í kvöld, en Jason er ekki með í kvöld. Selfoss fær ÍR í heimsókn.
Leikir kvöldsins í 2. deild:
18:00 Leiknir F.-Dalvík/Reynir (Fjarðabyggðarhöllin)
18:00 Kári-Vestri (Akraneshöllin)
19:15 Tindastóll-Víðir (Sauðárkróksvöllur)
19:15 Selfoss-ÍR (JÁVERK-völlurinn)
19:15 Þróttur V.-KFG (Vogaídýfuvöllur)
19:15 Völsungur-Fjarðabyggð (Húsavíkurvöllur)