31.07.19 - 10:15
Arnar Daði Arnarsson
Oddur Ingi í KV (Staðfest)

Oddur Ingi er kominn í KV.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Oddur Ingi er kominn í KV.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Miðjumaðurinn Oddur Ingi Guðmundsson hefur gert félagaskipti yfir í KV frá Fylki en hann hefur aðeins komið við sögu í tveimur leikjum með Fylki í sumar en hann hætti snemma sumars hjá félaginu.
Nú hefur hann hinsvegar ákveðið að taka slaginn með KV í 3. deildinni en liðið er í 4. sæti deildarinnar með 26 stig.

Eftir að hafa verið við toppinn fyrri hluta sumars hefur KV verið í erfiðleikum með að ná sigri í síðustu leikjum og er liðið án sigurs í síðustu fimm leikjum og aðeins náð í tvö stig af 15 mögulegum.
Oddur Ingi á að baki 131 meistaraflokksleiki og skorað í þeim 18 mörk. Hann hefur leikið allan sinn meistaraflokksferil hjá Fylki fyrir utan eitt tímabil þar sem hóf meistaraflokksferilinn hjá Þrótti árið 2009.
KV fer á Álftanes í kvöld og mætir þar Álftanesi klukkan 20:00 í 15. umferð 3. deildarinnar. Oddur Ingi er kominn með leikheimild og gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir KV í kvöld.