31.07.19 - 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Páll Olgeir til liðs við ÍR (Staðfest)

Páll Olgeir í leik með Þrótti í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Páll Olgeir í leik með Þrótti í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Páll Olgeir Þorsteinsson er búinn að fá félagaskipti yfir í ÍR og mun leika með liðinu seinni hluta sumars.
Hann kemur frá Þrótti R., en hann hefur komið við sögu í sjö leikjum í deild og bikar í sumar.
Páll Olgeir er fæddur 1995 og reyndist Þrótti afar mikilvægur eftir komu sína til félagsins um mitt síðasta sumar.
Páll er uppalinn hjá Breiðablik og á ellefu leiki að baki fyrir félagið í efstu deild. Þá hefur hann einnig leikið fyrir Víking R., Keflavík og Augnablik.
Nú kemur hann inn hjá ÍR sem er í níunda sætinu í hinni jöfnu 2. deild. ÍR er með 18 stig eftir 13 leiki.