Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 31. júlí 2021 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Pogba spenntur fyrir komandi tímum hjá Man Utd
Mynd: Getty Images
Paul Pogba á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Manchester United.

PSG hefur áhuga á leikmanninum en Sky Sports greinir frá því að með komu Jadon Sancho og Raphael Varane til United vilji Pogba vera áfram hjá félaginu.

Jafnframt segir að samband hans og Solskjær sé gott og hann sé spenntur fyrir komandi tímum hjá félaginu.

Hann er orðinn 28 ára gamall og býst við því að næsti samningur hans verði sá síðasti. Hann ætlar hinsvegar að skoða sín mál vel og þó hann verði ekki búinn að skrifa undir samning við United þegar hann rennur út þýði það ekki að hann muni ekki framlengja.
Athugasemdir
banner
banner