Fotbolti.net
31.08.16 - 20:12
Alexander Freyr Tamimi

Islam Slimani til Leicester (Staðfest)

Islam Slimani er að ganga í raðir Leicester.

Islam Slimani er að ganga í raðir Leicester.

Canon

Mynd: Getty Images

Alsírski framherjinn Islam Slimani er genginn í raðir Leicester frá portúgalska félaginu Sporting.

Sporting greindi frá því á vefsíðu sinni að leikmaðurinn væri genginn í raðir Englandsmeistaranna fyrir 30 milljónir evra með möguleika á fimm milljóna evra aukagreiðslu. Leicester hefur sömuleiðis staðfest komu hans.
Slimani er 28 ára gamall og skoraði 27 mörk fyrir Sporting á síðasta tímabili. Þá hefur hann gert 23 mörk í 43 landsleikjum.

Sky Sports greindi frá því í gær að Slimani væri á leið til Leicester, en hann er dýrasti leikmaðurinn í sögu félagsins.

✅ DONE DEAL! Algeria striker @slimaniislam completes a #DeadlineDay move to Leicester City. #WelcomeSlimani pic.twitter.com/uA9reEVsjd

— Leicester City (@LCFC) August 31, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.