31.08.16 - 16:17
Elvar Geir Magnússon
Marcos Alonso til Chelsea (Staðfest)

Marcos Alonso.

Mynd: Getty Images

Marcos Alonso.

Mynd: Getty Images
Marcos Alonso, fyrrum varnarmaður Bolton, er kominn aftur í ensku úrvalsdeildina. Fiorentina hefur staðfest að hann hefur verið seldur til Chelsea.
Alonso er 25 ára spænskur vinstri bakvörður sem var á sínum tíma hjá Sunderland.
Hann er fjórði leikmaðurinn sem Chelsea kaupir í sumar en áður hafði félagið krækt í N\'Golo Kante, Michy Batshuayi og Eduardo.
„Ég er mjög glaður. Þetta er skref upp á við á ferli mínum og ég tel að þetta sé fullkominn staður fyrir mig til að halda áfram að þróast. Það er kominn tími til að vinna einhverja titla,\" sagði Alonso.
„Þetta var auðveld ákvörðun fyrir mig þegar ég heyrði af áhuga Chelsea. Ég er mjög spenntur fyrir þessari áskorun og ég hlakka til að vinna með nýjum liðsfélgöum.\"

Marcos Alonso hress í Chelsea treyjunni pic.twitter.com/kbMOzpDG7C
— Gluggadagurinn! (@Fotboltinet) August 31, 2016