31.08.16 - 15:02
Magnús Már Einarsson
Nigel De Jong til Galatasaray (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Tyrkneska félagið Galatasaray hefur gert tveggja ára samning við hollenska miðjumanninn Nigel de Jong.
Galatasaray er að styrkja hópinn fyrir tímabilið framundan en í gær kom Kolbeinn Sigþórsson til félagsins á láni.
Hinn 31 árs gamli De Jong fór frá AC Milan til LA Galaxy fyrr á þessu ári.
„Ég er mjög ánægður með að vera hér. Ég hefði getað komið hingað á síðasta tímabili en það gerðist ekki þá,\" sagði De Jong eftir undirskriftina hjá Galatasaray í dag.
De Jong hefur einnig leikið með Ajax, Hamburg og Manchester City á ferlinum.