31.08.16 - 14:31
Magnús Már Einarsson
Serge Gnabry til Werder Bremen (Staðfest)

Gnabry á ferðinni.

Mynd: Getty Images

Gnabry á ferðinni.

Mynd: Getty Images

Werder Bremen hefur keypt þýska kantmanninn Serge Gnabry frá Arsenal á 4,5 milljónir punda.
FC Bayern og fleiri félög í Þýskalandi höfðu sýnt Gnabry áhuga undanfarna daga.
Á endanum skrifaði hann undir fjögurra ára samning hjá Werder Bremen.
FC Bayern og fleiri félög í Þýskalandi höfðu sýnt Gnabry áhuga undanfarna daga.
Á endanum skrifaði hann undir fjögurra ára samning hjá Werder Bremen.
Hinn 21 árs gamli Gnabry hefur verið hjá Arsenal frá því árið 2012 en á síðasta tímabili var hann í láni hjá WBA.
Gnabry var í liði Þýskalands sem fór í úrslit í Ólympíuleikunum í Brasilíu á dögunum.
Smelltu hér til að sjá öll staðfest félagaskipti
Gnabry var í liði Þýskalands sem fór í úrslit í Ólympíuleikunum í Brasilíu á dögunum.
Smelltu hér til að sjá öll staðfest félagaskipti
