31.08.16 - 15:45
Magnús Már Einarsson
Stoke lánar Wollscheid til Wolfsburg (Staðfest)

Mynd: Wolfsburg

Mynd: Wolfsburg

Þýska félagið Wolfsburg hefur fengið varnarmanninn Philipp Wollscheid á láni frá Stoke.
Hollenski varnarmaðurinn Bruno Martins Indi kom til Stoke á láni frá Porto í dag og þá fékk Wollscheid leyfi til að fara.
Wollscheid er 27 ára gamall Þjóðverji og hann er því á leið á heimaslóðir.
Wollscheid kom til Stoke frá Leverkusen árið 2015 en hann hefur einnig leikið með liðum eins og Nurnberg og Mainz á ferli sínum.