Fotbolti.net
31.08.16 - 12:02
Magnús Már Einarsson

Wilfried Bony til Stoke (Staðfest)

Wilfried Bony.

Wilfried Bony.

Canon

Mynd: Getty Images

Stoke hefur fengið framherjann Wilfried Bony á láni frá Manchester City út tímabilið.

Bony mætti í læknisskoðun hjá Stoke í morgun og skrifaði í kjölfarið undir.
„Þetta er nýr dagur og ég hlakka til að takast á við nýja og spennandi áskorun,\" sagði Bony á Twitter í morgun.

Hinn 27 ára gamli Bony kom til Manchester City frá Swansea í janúar 2015 en hefur ekki náð að festa sig í sessi í byrjunarliðinu. Hann hefur á ferli sínum skorað 130 mörk í 278 leikjum.

Stoke hefur verið í framherjaleit undanfarnar vikur og þeirri leit er nú lokið.

Stoke hefur einnig fengið markvörðinn Lee Grant á láni frá Derby fram í janúar en gengið var frá því í morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.