Fotbolti.net
31.08.17 - 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Abdennour til Marseille (Staðfest)

Abdennour til Marseille (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Marseille hefur fengið varnarmanninn Aymen Abdennour á láni frá Valencia og mun hann leika með franska liðinu út þetta tímabil.

Marseille getur síðan framlengt samninginn um eitt ár.
Hinn 28 ára gamli Abdennour þekkir sig vel í franska boltanum eftir að hafa áður spilað með Toulouse og Mónakó. Hann fór síðan til Valencia þar sem hann fann ekki alveg sama taktinn.

„Ég er mjög stoltur og ánægður að vera hérna. Ég vonast til að afreka eitthvað stórt hjá Marseille,\" sagði Abdennour.

Hann kemur til með að spila við hlið Adil Rami í vörn Marseille.

„Ég þekki Adil Rami vel úr La Liga. Hann er stríðsmaður með gott hugarfar. Ég hlakka til að spila við hlið hans.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.