31.08.17 - 18:32
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Bojan farinn frá Stoke til Spánar (Staðfest)

Bojan er snúinn aftur til Spánar

Mynd: Getty Images

Bojan er snúinn aftur til Spánar

Mynd: Getty Images
Bojan er farinn frá enska úrvalsdeildarfélaginu Stoke City til Spánar, en hann gengur til liðs við Alaves á eins árs lánssamningi.
Ferill Bojan hefur verið á hraðri niðurleið frá því að hann yfirgaf Barcelona árið 2011.
Bojan ólst upp hjá spænska stórliðinu og spilaði hann sinn fyrsta leik fyrir Barcelona aðeins nýorðinn 17 ára gamall. Varð hann um leið yngsti leikmaður í sögu Barcelona, tók metið af sjálfum Lionel Messi.
Árið 2011 gekk hann til liðs við Roma, ásamt því að fara á láni til AC Milan og Ajax áður en hann gekk til liðs við Stoke.
Bojan lék 53 leiki fyrir Stoke og skoraði 14 mörk fyrir félagið.

FICHAJE | Bojan Krkic llega al #Alavés 😀➡️ https://t.co/lBWxB6ABHX ¡Bienvenido, @BoKrkic! 🔵⚪️🔵 #GoazenGlorioso pic.twitter.com/OlNeANaQ7B
— Deportivo Alavés (@Alaves) August 31, 2017