Fotbolti.net
31.08.17 - 21:13
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson

Celtic fær ungan Frakka frá PSG (Staðfest)

Edouard í leik með B-liði PSG

Edouard í leik með B-liði PSG

Canon

Mynd: Twitter

Skosku meistararnir, Celtic hafa fengið Frakkan unga Odsonne Edouard frá PSG.

Edouard skrifar undir eins árs lánssamning við Celtic og þá á félagið forkaupsréttinn á honum.

Edouard er sagður vera einn efnilegasti Frakkinn um þessar mundir.

Árið 2015 varð hann markahæsti leikmaður Evrópumóts U17 ára landsliða, ásamt því að vera valinn besti leikmaðurinn.

Edouard náði ekki að leika aðalliðsleik fyrir PSG en hann var lánaður til Toulouse og hefur því smá reynslu úr frönsku úrvalsdeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.