Fotbolti.net
31.08.17 - 15:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Dortmund nælir í efnilegan strák frá Man City (Staðfest)

Fær gömlu treyjuna hans Ousmane Dembele

Dortmund nælir í efnilegan strák frá Man City (Staðfest)
Canon

Mynd: Twitter

Dortmund var að næla í efnilegan leikmann frá Manchester City. Strákurinn heitir Jordan Sancho og er 17 ára gamall.

Sancho mun greinilega fá ágætis hlutverk hjá Dortmund. Hann fær treyju númer sjö hjá félaginu, en Ousmane Dembele lék í þeirri treyju hjá Dortmund áður en hann fór til Barcelona.
Sancho var ósáttur í Manchester-borg. Hann fékk ekki að fara með í æfingaferð til Bandaríkjanna og eftir það hætti hann að mæta á æfingar. Líkt og hinn títtnefndi Ousmane Dembele gerði hjá Dortmund þegar hann frétti af áhuga frá Barcleona.

Sancho hefur verið orðaður við Tottenham og Arsenal, en hann hefur ákvað að flytja búferlum til Þýskalands.

Dortmund borga 9 milljónir evra fyrir Sancho.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.