31.08.17 - 22:28
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Fernando Llorente til Tottenham (Staðfest)

Swansea búið að missa tvo af sínum bestu leikmönnum frá því í fyrra

Mynd: Getty Images

Fernando Llorente er kominn til Tottenham en félagið staðfesti það nú rétt í þessu.
Félagaskiptin hafa legið í loftinu í kvöld en Swansea var að bíða eftir staðfestingu á Wilfried Bony til félagsins áður en þeir myndu leyfa Llorente að fara.
Fyrr í kvöld birtist mynd af Llorente í Tottenham búning.
Fernando Llorente og Gylfi Þór Sigurðsson mynduðu gott samband með Swansea í fyrra, og var það nánast þeim að þakka að félagið hélt sér í deild þeirra bestu. Þeir eru nú báðir horfnir á braut frá Swansea.
Llorente gerði garðinn frægan hjá Athletic Bilbao og var hann keyptur til Juventus eftir það. Hann var flottur með Swansea í fyrra og er nú kominn í Meistaradeildina með Tottenham.

It's done! ✅ 👍🏼 #WelcomeFernando pic.twitter.com/sHRihm11n1
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) August 31, 2017