Fotbolti.net
31.08.17 - 15:11
Magnús Már Einarsson

Íslenskur U21 landsliðsmaður til Vendsyssel á láni (Staðfest)

Mikael (í fjólubláu) i leik með Midtjylland á síðasta tímabili.

Mikael (í fjólubláu) i leik með Midtjylland á síðasta tímabili.

Canon

Mynd: Getty Images

Vendsyssel í dönsku B-deildinni hefur fengið íslenska sóknarmanninn Mikael Neville Anderson á láni frá FC Midtjylland í Danmörku en samningurinn gildir í eitt ár.

Hinn 19 ára gamli Mikael var á dögunum valinn í íslenska U21 árs landsliðið í fyrsta skipti. Hann er nú staddur á Íslandi að undirbúa sig með U21 liðinu fyrir leikinn gegn Albaníu á Víkingsvelli á mánudaginn.
Mikael ólst upp í Sandgerði en hann flutti til Danmerkur þegar hann var 11 ára gamall. Móðir Mikaels er íslensk en faðir hans er frá Jamaíka.

Í desember í fyrra spilaði Mikael sinn fyrsta leik í dönsku úrvalsdeildinni með Midtjylland. Hann er nú farinn til Vendsyssel á láni til að fá meiri leikreynslu.

Mikael getur spilað í fremstu stöðunum á vellinum en hann er oftast frammi eða á vinstri kantinum.

Mikael hefur verið valinn í U18 og U19 ára landslið Dana en hann er núna í íslenska U21 árs hópnum fyrir leikinn gegn Albaníu á mánudag.

Sjá einnig:
Mikael í Midtjylland: Opinn fyrir að spila fyrir hönd Íslands (Desember 2016)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.