Fotbolti.net
31.08.17 - 11:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kevin Kampl til RB Leipzig (Staðfest)

Kevin Kampl til RB Leipzig (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

RB Leipzig, sem barðist um þýska meistaratitilinn á síðasta tímabili, hefur styrkt sig fyrir átökin í Meistaradeildin á þessu tímabili. Félagið hefur gengið frá kaupum á Kevin Kampl frá Bayer Leverkusen.

Hann skrifaði undir fjögurra ára samning, en talið er að félagið, sem er oft bendlað við Red Bull, borgi 18 milljónir evra fyrir hann.
Hann kemur til með að fylla í skarð Naby Keita þegar hann fer til Liverpool næsta sumar, en þeir spila saman á þessu tímabili.

Leipzig hefur haft það í vana sínum að kaupa einungis leikmenn sem eru 24 ára eða yngri. Ekki í þetta skiptið, Kampl er 26 ára.

Kampl spilaði með systrafélagi RB Leipzig, Red Bull Salzburg áður en hann kom til Þýskalands. Þegar hann kom fyrst til Þýskalands fór hann til Borussia Dortmund og hann fór síðan til Leverkusen. Hann hefur nú verið keyptur til RB Leipzig og verður þar til 2021.

BREAKING: #DieRotenBullen have signed @KevinKampl_KK from @bayer04_en on a four-year-deal ✍️

Welcome to Leipzig, Kevin! 🤗 pic.twitter.com/kCkz7D3fJA

— RB Leipzig English (@RBLeipzig_EN) August 31, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.