Fotbolti.net
31.08.17 - 14:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Leeds fær nýja níu (Staðfest)

Lasogga kemur á láni frá Hamburg.

Lasogga kemur á láni frá Hamburg.

Canon

Mynd: Getty Images

Leeds er að nota gluggadaginn vel. Þeir hafa fengið sóknarmanninn Pierre-Michel Lasogga á láni frá Hamburg.

Hann mun leika með Leeds út þessa leiktíð og fær hann treyju númer níu hjá félaginu.
Lasogga, sem er 25 ára gamall, lék sína fyrstu leiki í meistaraflokki með varaliði Bayer Leverkusen, en undanfarin ár hefur hann leikið með Hamburg. Hann á einnig leiki með Hertha Berlín.

Núna er hann kominn til Leeds sem hefur farið vel af stað í Championship-deildinni.

Hann kemur til með að fylla skarðið sem Chris Wood skilur eftir sig hjá Leeds. Wood fór til Burnley á dögunum.

Lasogga er annar leikmaðurinn sem Leeds fær til sín í dag. Hinn var Pawel Cibicki, sem kom frá sæna liðinu Malmö.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.