Fotbolti.net
31.08.17 - 19:23
Brynjar Ingi Erluson

Leicester lánar Mendy til Nice (Staðfest)

Nampalys Mendy

Nampalys Mendy

Canon

Mynd: Getty Images

Franska félagið Nice var rétt í þessu að ganga frá félagaskiptum Nampalys Mendy en hann kemur á láni frá Leicester City á Englandi.
Mendy, sem er 25 ára gamall, kom til Leicester frá Nice fyrir ári síðan en tókst þó ekki að sanna sig.

Hann spilaði aðeins sjö leiki yfir allt tímabilið og hefur ekki verið að finna sig í byrjunarliði enska liðsins.

Hann er nú búinn að gera eins árs lánssamning við sitt gamla félag Nice.

Hann á að baki fimm leiki fyrir U21 árs landslið Frakklands en á enn eftir að spila A-landsleik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.