Fotbolti.net
31.08.17 - 17:31
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson

Man City lánar miðvörð til Galatasaray (Staðfest)

Denayer lék síðast með Sunderland. Er nú kominn til Tyrklands

Denayer lék síðast með Sunderland. Er nú kominn til Tyrklands

Canon

Mynd: Getty Images

Miðvörðurinn ungi Jason Denayer hjá Manchester City hefur verið lánaður til tyrkneska félagsins Galatasaray.

Denayer kemur frá Belgíu en hann á enn eftir að spila aðalliðsleik fyrir Manchester City.

Belginn gekk til liðs við Manchester City árið 2013 en hefur síðan þá verið lánaður frá félaginu.

Fyrst fór hann til Celtic í Skotlandi, áður en hann fór til Galatasaray.

Á síðasta tímabili lék Denayer með Sunderland en hann lék 24 leiki fyrir félagið þegarg það féll úr ensku úrvalsdeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.