31.08.17 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nott. Forest lánar finnskan landsliðsmann (Staðfest)

Lam í landsleik með Finnum.

Mynd: Getty Images

Lam í landsleik með Finnum.

Mynd: Getty Images
Enska Championship-deildarliðið Nottingham Forest hefur lánað Thomas Lam til Twente í hollensku úrvalsdeildinni.
Lam er finnskur landsliðsmaður og spilar annað hvort sem varnarmaður eða sem miðjumaður.

Hann er í finnska landsliðshópnum sem mætir Íslandi á laugardaginn.
Hinn 23 ára gamli Lam kom til Nottingham Forest síðasta sumar frá hollenska liðinu Zwolle.
Hann spilaði 21 leik á síðasta tímabili, en er ekki inn í myndinni fyrir þetta tímabil. Lam er því farinn aftur til Hollands.