31.08.17 - 11:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ögmundur til Excelsior (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markvörðurinn Ögmundur Kristinsson hefur fengið félagaskipti frá Hammarby í Svíþjóð til hollenska liðsins Excelsior Rotterdam.
„Velkominn til Excelsior Rotterdam Ögmundur Kristinsson!\" skrifar hollenska liðið á Twitter og birtir mynd með. Ögmundur skrifaði undir eins árs samning með möguleika á eins árs framlengingu.

Ögmundur kemur til liðsins frá Hammarby. Honum var leyft að fara þaðan eftir að félagið fékk Johan Wiland frá Malmö.
Ögmundur var á dögunum á reynslu hjá Bristol City en ekkert varð af samningum þar.
Excelsior leikur í hollensku úrvalsdeildinni. Þeir eru í 11. sæti eftir þrjár umferðir.
Ögmundur hefur átt fast sæti í íslenska landsliðshópnum undanfarin ár. Hann var ekki valinn fyrir komandi leiki gegn Finnlandi og Úkraínu til að geta einbeitt sér að því að finna sér nýtt félag í þessari viku áður en félagaskiptaglugginn lokar. Nú er það klárt hjá honum.
Excelsior hefur einnig fengið markvörðinn Theo Zwarthoed í sínar raðir en hann og Ögmundur eiga að berjast um markvarðarstöðuna. Theo er 34 ára markvörður sem spilaði síðast með Go Ahead Eagles í Hollandi.

⚽️ Welkom bij Excelsior Rotterdam Ögmundur Kristinsson! #excelsiorrdam #deadlineday #samensterk ⚫️🔴 pic.twitter.com/hP6vwk8FTd
— Excelsior Rotterdam (@excelsiorrdam) August 31, 2017