Fotbolti.net
31.08.17 - 12:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Orestis Karnezis til Watford á láni (Staðfest)

Orestis Karnezis til Watford á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Watford hefur nælt í gríska markvörðinn Orestis Karnezis á láni frá Udinese. Lánsamningurinn gildir út yfirstandandi tímabil.

Önnur lið úr ensku úrvalsdeildinni höfðu áhuga á honum.
Umboðsmaður hans, Vlasileiss Panagiotakis, sagði á dögunum að þrjú ensk lið, Watford og líklega Newcastle og Crystal Palace, hefðu verið í baráttu um Karnezis, en það er Watford sem fær hann.

Hann kemur til að berjast við markvarðarstöðuna við Gomes, en markvörðurinn hávaxni Costel Pantilimon er væntanlega á förum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.