31.08.17 - 14:03
Magnús Már Einarsson
Origi til Wolfsburg á láni (Staðfest)

Farinn til Þýsklalands.

Mynd: Getty Images

Farinn til Þýsklalands.

Mynd: Getty Images
Liverpool hefur lánað framherjann Divock Origi til Wolfsburg í Þýskalandi. Lánssamningurinn gildir út tímabilið.
Hinn 22 ára gamli Origi hefur skorað 21 mark í 77 leikjum með Liverpool síðan félagið keypti hann frá Lille árið 2014.
Belginn færðist hins vegar aftar í goggunarröðinni eftir komu Dominic Solanke og Mohamed Salah til Liverpool í sumar.
Origi hefur komið við sögu í einum leik með Liverpool á tímabilinu en hann kom inn á sem varamaður gegn Watford í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.