Fotbolti.net
31.08.17 - 11:02
Magnús Már Einarsson

Oxlade-Chamberlain til Liverpool (Staðfest)

Oxlade-Chamberlain til Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Liverpool

Liverpool hefur keypt enska landsliðsmanninn Alex Oxlade-Chamberlain í sínar raðir frá Arsenal.

Liverpool borgar 35 milljónir punda fyrir Oxlade-Chamberlain en fimm milljónir punda til viðbótar bætast við ef hann stendur sig vel hjá félaginu.
Chelsea vildi einnig fá Oxlade-Chamberlain í sínar raðir en hann ákvað að velja Livepool.

Oxlade-Chamberlain er enskur landsliðsmaður en hann getur spilað bæði á miðjunni og kantinum. Oxlade-Chamberlain fór í læknisskoðun á æfingasvæði enska landsliðsins þar sem hann er í landsliðsverkefni.

„Ég er ánægður með að hafa skrifað undir hjá Liverpool. Ég vil þakka öllum hjá enska knattspyrnusambandinu sérstaklega fyrir að gea þetta mögulegt með því að leyfa okkur að nota aðstöðuna. Það hefur hjálpað mikið,\" sagði Oxlade-Chamberlain eftir undirskrift.

Samningur Oxlade-Chamberlain við Arsenal átti að renna út næsta sumar en hann hafnaði nýjum samningi hjá félaginu til að ganga í raðir Liverpool.

Welcome, @Alex_OxChambo! 🔴 pic.twitter.com/joYm7hvK3m

— Liverpool FC (@LFC) August 31, 2017

Looking the part, @Alex_OxChambo. 🔴 pic.twitter.com/6rh3RHHvZH

— Liverpool FC (@LFC) August 31, 2017



Sjá einnig:
Oxlade-Chamberlain skoraði þrennu á Laugardalsvelli
Oxlade-Chamberlain tekur á sig miklu lægri laun hjá Liverpool
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.