Fotbolti.net
31.08.17 - 13:05
Magnús Már Einarsson

Renato Sanches til Swansea (Staðfest)

Mættur til Swansea!

Mættur til Swansea!

Canon

Mynd: Getty Images

Swansea hefur fengið portúgalska miðjumanninn Renato Sanches á láni frá Bayern Munchen út tímabilið. Hinn tvítugi Sanches var í sigurliði Portúgals á EM í fyrra en hann var valinn besti ungi leikmaðurinn á mótinu.

Hann á að hjálpa til við að fylla skarðið sem Gylfi Þór Sigurðsson skildi eftir sig hjá Swansea.

Paul Clement, stjóri Swansea, notaði sambönd sín til að krækja í Sanches en leikmaðurinn hafði verið orðaður við mörg stórlið í sumar.

Clement var aðstoðarþjálfari Carlo Ancelotti hjá Bayern fyrri hlutann á síðasta tímabili og þar kynntist hann Sanches.

Ancelotti og Clement eru góðir vinir en þeir hafa einnig starfað saman hjá Chelsea, Real Madrid og PSG. Clement hefur nú fengið Sanches lánaðan út tímabilið en Ancelotti vill að leikmaðurinn öðlist meiri leikreynslu áður en hann kemur aftur til Bayern.

Swansea kynnti Sanches til sögunnar með skemmtilegu myndbandi sem má sjá hér að neðan.

👀📝 pic.twitter.com/DEGkCees5y

— Swansea City AFC (@SwansOfficial) August 31, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.