31.08.17 - 11:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Serge Aurier til Tottenham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Tottenham var rétt í þessu að staðfesta kaup á bakverðinum Serge Aurier, en hann kemur frá Paris Saint-Germain.
Aurier hefur skrifað undir samning til 2022 og honum hefur verið úthlutað treyju númer 24 hjá Tottenham.

„Þetta er gríðarlega stórt og spennandi tækifæri fyrir mig,\" sagði Aurier eftir að hafa krotað undir samninginn.
Aurier er maðurinn sem á að fylla skarð Kyle Walker sem fór til Manchester City á 50 milljónir punda í sumar.
Félagaskipti hans til Tottenham hafa legið í loftinu í nokkra daga en tíma tók að fá atvinnuleyfi fyrir hann. Atvinnuleyfið kom í hús í gær og Aurier er nú orðinn leikmaður Tottenham. Talið er að Tottenham borgi PSG 23 milljónir punda fyrir hann.

We are delighted to announce the signing of @Serge_aurier from Paris Saint-Germain. ✍️ #WelcomeAurier pic.twitter.com/VUwvROyUK4
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) August 31, 2017