31.08.17 - 13:28
Magnús Már Einarsson
Stoke lánar dýrasta leikmanninn til Toulouse (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Stoke hefur lánað miðjumanninn Giannelli Imbula til Toulouse í Frakklandi.
Imbula varð dýrasti leikmaðurinn í sögu Stoke þegar hann kom til félagsins frá Porto á rúmar 18 milljónir punda árið 2016.

Þessi 24 ára gamli Frakki hefur hins vegar ekki náð að festa sig í sessi á Englandi.
Imbula spilaði einungis tólf leiki í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og hann verður í frönsku deildinni í vetur.