Fotbolti.net
31.08.17 - 19:21
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson

Ungur Króati til Everton (Staðfest)

Nýjast liðsfélagi Gylfa

Nýjast liðsfélagi Gylfa

Canon

Mynd: Everton

Króatinn ungi, Nikola Vlasic er orðinn liðsfélagi Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá Everton.

Framherjinn skrifaði undir fimm ára samning við Everton en hann kemur frá Hadjuk Split.

Kaupverðið er talið vera um 10 milljónir punda.

Everton og Hadjuk Split mættust einmitt í forkeppni Evrópudeildarinnar fyrr í þessum mánuði og hefur hann greinilega heillað forráðamenn Everton í því einvígi.

Vlasic hefur leikið fyrir öll landslið Króatíu en hann er á tvítugasta aldursári. Hann lék sinn fyrsta og eina A-landsleik fyrr á þessu ári.

🔵⚪️ | #WelcomeVlasic! 👍

The 19-year-old forward has joined from @hajduk on a five-year contract: https://t.co/rLYyIqtsT9 pic.twitter.com/qcBlBM0ceR

— Everton (@Everton) August 31, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.