31.08.17 - 21:42
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Wilfried Bony aftur til Swansea (Staðfest)

Bony er kominn aftur til Swansea

Mynd: Getty Images

Bony er kominn aftur til Swansea

Mynd: Getty Images
Wilfried Bony er kominn aftur til Swansea eftir nokkurra ára eyðimerkugöngu hjá Manchester City og Stoke.
Bony staðfesti það sjálfur á Instagram síðu sinni.
Bony sló í gegn einmitt hjá Swansea þegar hann gekk til liðs við félagið árið 2013.
Næstu tvö árin átti hann eftir að spila 54 leiki og skora 26 mörk. Það heillaði forráðamenn Manchester City sem keyptu hann á háar fjárhæðir.
Þar týndist hann algjörlega. Spilaði 36 leiki og skoraði aðeins 6 mörk. Á síðasta tímabili var hann svo lánaður til Stoke. Þar spilaði hann tíu leiki og skoraði tvö mörk.
Nú er að sjá hvort hann muni finna markaskónna aftur hjá Swansea.

A post shared by Bony Wilfried (@w.bony) on