Fotbolti.net
31.08.19 - 22:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Bakayoko aftur til Mónakó (Staðfest)

Bakayoko í leik með AC Milan á síðasta tímabili.

Bakayoko í leik með AC Milan á síðasta tímabili.

Canon

Mynd: Getty Images

Miðjumaðurinn Tiemoue Bakayoko er mættur aftur til Mónakó. Hann kemur á láni frá Chelsea út leiktíðina.
Bakayoko var keyptur til Chelsea frá Mónakó fyrir 40 milljónir punda sumarið 2017. Hann náði ekki að heilla hjá Chelsea og var lánaður til AC Milan á síðasta tímabili.

Hann var ekki í plönum Frank Lampard, stjóra Chelsea, og er því farinn aftur til Mónakó.

Hann vann frönsku úrvalsdeildina með Mónakó 2017 og hjálpaði liðinu að komast í undanúrslit Meistaradeildarinnar það sama tímabil.

Mónakó hefur ekki farið vel af stað í frönsku úrvalsdeildinni og er aðeins með eitt stig eftir þrjá leiki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.