31.08.19 - 11:15
Ívan Guðjón Baldursson
Elneny til Besiktas (Staðfest)

Elneny er samningsbundinn Arsenal til 2022.

Mynd: Getty Images

Egypski miðjumaðurinn Mohamed Elneny er búinn að skrifa undir eins árs lánssamning við Besiktas.
Elneny er 27 ára og á 89 leiki að baki á fjórum árum hjá Arsenal, 46 í úrvalsdeildinni og 43 í bikarkeppnum.
Hjá Besiktas mun Elneny spila með nokkrum fyrrum úrvalsdeildarleikmönnum á borð við Loris Karius, Georges-Kevin Nkoudou og Jeremain Lens.
Króatíski landsliðsmaðurinn Domagoj Vida er einnig hjá liðinu rétt eins og serbneski sóknartengiliðurinn Adem Ljajic.
Elneny er fastamaður í egypska landsliðinu og á 67 leiki að baki fyrir aðalliðið.

Transferrrrrr No: #6 🔧 pic.twitter.com/k3mmbu90BU
— Beşiktaş JK (@Besiktas) August 31, 2019