Fotbolti.net
31.08.19 - 11:40
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Imbula til Lecce (Staðfest) - Falur fyrir 4 milljónir

Imbula lék 29 leiki fyrir Stoke áður en félagið ákvað að losa sig við hann.

Imbula lék 29 leiki fyrir Stoke áður en félagið ákvað að losa sig við hann.

Canon

Mynd: Getty Images

Stoke City ætlaði sér stóra hluti tímabilið 2016-17 og borgaði 20 milljónir punda fyrir franska miðjumanninn Giannelli Imbula, sem er enn í dag dýrasti leikmaður í sögu félagsins. Á þeim tíma var hann leikmaður Porto.
Honum gekk herfilega í enska boltanum og var lánaður út næstu tvö tímabil, fyrst til Toulouse og á síðustu leiktíð til Rayo Vallecano.

Nú reynir hann fyrir sér í ítalska boltanum og er búinn að skrifa undir samning við Lecce, sem eru komnir aftur upp í Serie A eftir langa fjarveru.

Takist Lecce að halda sér í efstu deild fær félagið Imbula fyrir gjafaprís, eða fjórar milljónir evra.

Imbula er að verða 27 ára. Hann þótti gríðarleg vonarstjarna og spilaði fyrir U21 og U20 lið Frakklands en svo rættist ekki úr honum. Hann valdi því að spila fyrir landslið Kongó og ætlaði með á Afríkumótið í sumar en ekki tókst að skrá hann í tæka tíð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.