Fotbolti.net
31.08.19 - 08:45
Ívan Guðjón Baldursson

Nacho Monreal til Real Sociedad (Staðfest)

Nacho Monreal til Real Sociedad (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Spænski varnarmaðurinn Nacho Monreal er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Real Sociedad í heimalandinu eftir 6 og hálft ár í London.
Monreal er 33 ára og skoraði 10 mörk í 250 keppnisleikjum með Arsenal. Hann byrjaði þrjá fyrstu deildarleiki Arsenal á tímabilinu og var fyrirliði gegn Burnley en nú mun Sead Kolasinac taka við bakvarðarstöðunni.

Kolasinac mun svo berjast um stöðuna við Kieran Tierney þegar sá skoski kemur til baka úr meiðslum en hann var keyptur frá Celtic fyrir 25 milljónir punda í sumar.

Kaupverðið er ekki gefið upp en er talið nema um 5 milljónum punda.

Monreal, sem á 22 landsleiki að baki, vann enska bikarinn þrisvar sinnum með Arsenal.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.