31.08.19 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Nice fær Kasper Dolberg og Adam Ounas (Staðfest)

Dolberg, sem þótti eitt mesta efni Evrópu fyrir þremur árum, hefur skorað þrisvar í þrettán A-landsleikjum.

Mynd: Getty Images

Enski milljarðamæringurinn Jim Ratcliffe gekk nýlega frá kaupum á franska félaginu OGC Nice og voru þrír nýir leikmenn kynntir í gær.
Adam Ounas kemur á lánssamningi frá Napoli og honum fylgir 25 milljón evra kaupmöguleiki sem myndi gera hann að dýrasta leikmanni í sögu félagsins. Hann er kantmaður og á að fylla í skarðið sem Allan Saint-Maximin skilur eftir sig, en hann var seldur til Newcastle í sumar.
Ounas, sem verður 23 ára í nóvember, var keyptur til Napoli fyrir tveimur árum en hefur ekki tekist að vinna sér inn sæti í byrjunarliðinu. Hann hefur verið notaður mikið af bekknum og skoraði fjögur mörk á síðustu leiktíð.
Danski sóknarmaðurinn Kasper Dolberg er einnig kominn til Nice og borgaði félagið metfé fyrir, eða 20 milljónir evra. Dolberg hefur verið fastamaður í byrjunarliði Ajax undanfarin þrjú ár og hefur skorað 45 mörk í 118 leikjum fyrir félagið. Hann verður 22 ára í október.
Þriðji leikmaðurinn sem var kynntur í gær er Alexis Claude-Maurice sem valdi Nice framyfir West Ham. Claude-Maurice er 21 árs framherji sem kemur frá Lorient fyrir 15 milljónir evra.
Líklegt er að Nice haldi áfram að styrkja hópinn þar til sumarglugginn lokar á mánudaginn. Jean-Kevin Augustin, sóknarmaður RB Leipzig, hefur verið orðaður við félagið en franskir fjölmiðlar segja Mónakó líklegri til að krækja í hann.
Patrick Vieira tók við Nice síðasta sumar og stýrði liðinu í sjöunda sæti frönsku deildarinnar. Nú stefnir félagið á að komast í Evrópudeildina.

Et puis, surtout... #IssaNissa 🔴⚫ pic.twitter.com/3gvrYJgrQY
— OGC Nice (@ogcnice) August 30, 2019