Fotbolti.net
31.08.19 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Southampton lánar Elyounoussi til Celtic (Staðfest)

Southampton lánar Elyounoussi til Celtic (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Skosku meistararnir í Celtic eru búnir að tryggja sér norska kantmanninn Mohamed Elyounoussi á lánssamningi út leiktíðina.
Elyounoussi er 25 ára og var keyptur til Southampton fyrir 16 milljónir punda síðasta sumar en fann aldrei taktinn í enska boltanum.

Hann hefur alltaf verið iðinn við markaskorun en sú lyst brást honum hjá Southampton þar sem hann fékk að spila 19 leiki á síðustu leiktíð, án þess að koma knettinum í netið.

Elyounoussi hefur skorað 5 sinnum í 22 landsleikjum fyrir Noreg og er afar hæfileikaríkur. Hann vann norsku deildina með Molde 2014 og þá svissnesku með Basel 2017 þannig hann er vanur því að vera í titilbaráttu, líkt og Celtic er í á hverju ári í Skotlandi.

Hann afgreiddi Celtic í riðlakeppni Evrópudeildarinnar 2015, þar sem hann skoraði og lagði upp bæði á heimavelli og útivelli. Það haustið vann Molde óvænt riðil sem innihélt einnig Fenerbahce og Ajax.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.