31.10.16 - 14:40
Magnús Már Einarsson
Dofri Snorra framlengir við Víking R. (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dofri Snorrason hefur framlengt samning sinn við Víkig Reykjavík um þrjú ár.
Samningur Dofra átti að renna út um áramótin en nú er ljóst að hann verður áfarm hjá Víkingi.
Dofri er uppalinn hjá KR en hann hefur spilað með Víkingi undanfarin fjögur tímabil. Hann lék einnig í Fossvoginum á láni árið 2010.
Í sumar spilaði Dofri alla leiki Víkings í Pepsi-deildinni en hann getur leikið bæði í bakverði og á kantinum.

„Í dag skrifaði @dofris11 undir nýjan 3ja ára samning við Víking. Til hamingju Dofri og til hamingju allir Víkingar,\" sagði Víkingur R. á Twitter.
Dofri hefur skorað 15 mörk í 148 deildar og bikarleikjum á ferli sínum. Undanfarin ár hefur hann verið fastamaður í liði Víkings og ekki misst af mörgum leikjum.