31.10.16 - 16:46
Magnús Már Einarsson
Þorsteinn hafnaði liðum í Pepsi - Áfram á Selfossi (Staðfest)

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Hægri bakvörðurinn Þorsteinn Daníel Þorsteinsson skrifaði í dag undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnudeild Selfoss en Sunnlenska.is greinir frá.
Þorsteinn Daníel er 22 ára gamall og er uppalinn á Selfossi. Hann hefur spilað 99 leiki fyrir félagið í öllum keppnum frá árinu 2013.
Þorsteinn hefur verið í lykilhlutverki hjá Selfyssingum en félög í Pepsi-deildinni vildu fá hann í sínar raðir.
„Þetta eru frábærar fréttir fyrir knattspyrnuunnendur á Selfossi að Þorsteinn Daníel hafi framlengt samning sinn við félagið. Það var mikill áhugi frá liðum í Pepsi deildinni að fá hann í sínar raðir en að lokum lét hann hjartað ráða og ákvað að halda tryggð við uppeldisfélagið sitt,\" segir Adólf Ingvi Bragason, formaður knattspyrnudeildarinnar við Sunnlenska.
„Við erum á ákveðinni vegferð með klúbbinn og ætlum að gera harða hríð að komast upp í Pepsi deild að nýju. Við erum með ungan leikmannahóp og það skiptir félagið gríðarlega miklu máli að halda öllum sínum bestu leikmönnum.“ sagði Adólf ennfremur.

Heimild: Sunnlenska.is