Fotbolti.net
31.10.17 - 16:04
Magnús Már Einarsson

Alexandra Jóhanns í Breiðablik (Staðfest)

Alexandra Jóhannsdóttir og Þorsteinn Halldórsson þjálfari Breiðabliks.

Alexandra Jóhannsdóttir og Þorsteinn Halldórsson þjálfari Breiðabliks.

Canon

Mynd: Breiðablik

Miðjumaðurinn efnilegi Alexandra Jóhannsdóttir hefur gengið til liðs við Breiðablik.

Hin 17 ára gamla Alexandra kemur til Breiðabliks frá Haukum þar sem hún hefur verið í lykilhlutverki undanfarin ár þrátt fyrir ungan aldur.
„Við Blikar viljum nota tækifærið og þakka Haukum sértaklega fyrir lipurð og skilning í tengslum við þessi vistaskipti þar sem sameiginlegir hagsmunir félaganna og leikmannsins voru hafðir að leiðarljósi og ljóst að samstarf félaganna mun í framhaldi af þessu eflast til framtíðar,\" segir á Blikar.is.

„Blikar fagna þessum spennandi liðsauka og bjóða Alexöndru hjartanlega velkomna í Kópavoginn.\"

Alexandra hefur skorað átta mörk í 41 leik með Haukum en hún hefur einnig skorað tíu mörk í 29 leikjum með U17 og U19 ára landsliði Íslands. Þrátt fyrir að vera aðeins 17 ára þá hefur hún verið fyrirliði í U19 ára landsliðinu undanfarið.

Alexandra er annar ungi og efnilegi leikmaðurinn sem Breiðablik fær á stuttum tíma en í síðustu viku kom Karolína Lea Vilhjálmsdóttir til félagsins frá FH.
Alexandra Jóhannsdóttir.

Alexandra Jóhannsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.