31.10.17 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Foda fyrsti Þjóðverinn til að þjálfa Austurríki (Staðfest)

Franco Foda var næstum búinn að stýra Kaiserslautern aftur upp í þýsku efstu deildina en tapaði fyrir Hoffenheim í umspilinu 2013.

Mynd: Getty Images

Þjóðverjinn Franco Foda hefur verið ráðinn sem nýr stjóri austurríska landsliðsins.
Foda skrifaði undir tveggja ára samning, með möguleika á framlengingu komi hann landsliðinu á EM 2020.

Foda tekur við stjórnartaumunum af Marcel Koller sem hefur stýrt Austurríkismönnum í sex ár, en Koller vann samkeppnina við Foda um að vera ráðinn landsliðsþjálfari 2011.
Foda var atvinnumaður í knattspyrnu í 18 ár og vann þýska bikarinn með bæði Kaiserslautern og Bayer Leverkusen áður en hann lauk ferlinum hjá Sturm Graz í Austurríki, þar sem hann vann bæði bikar og deild.
Eftir að ferli Foda lauk tók hann við þjálfun hjá Sturm Graz og var þar í áratug, áður en hann tók við Kaiserslautern í eitt tímabil og sneri síðan aftur til Sturm Graz.