Fotbolti.net
31.10.17 - 15:43
Magnús Már Einarsson

Sigurpáll Melberg í Fjölni (Staðfest)

Sigurpáll Melberg Pálsson.

Sigurpáll Melberg Pálsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjölnir hefur fengið Sigurpál Melberg Pálsson til liðs við sig frá Fram en félagið staðfesti þetta í dag. Sigurpáll skrifaði undir þriggja ára samning við Fjölni í dag.

„Virkilega spennandi leikmaður hér á ferðinni sem mörg félög vildu fá í sínar raðir - við bjóðum Sigurpál hjartanlega velkominn í Grafarvoginn og hlökkum til að sjá hann í gulu treyjunni í Pepsi deildinni næsta sumar,\" segir í fréttatilkynningu frá Fjölni.

Sigurpáll er 21 árs varnar og miðjumaður en hann var fyrirliði Fram í Inkasso-deildinni á nýliðnu sumri. Í sumar skoraði Sigurpáll tvö mörk í 21 leik með Fram í Inkasso-deildinni en hann lék einnig með liðinu í fyrra.

Sigurpáll er uppalinn í Aftureldingu en þar spilaði hann sinn fyrsta tímabil í meistaraflokki árið 2014.

Í gær var greint frá því að erlendu leikmennirnir Ivica Dzolan, Linus Olsson, Mees Siers og Fredrik Michaelsen verði ekki áfram hjá Fjölni. Í Grafarvogi er verið að leita að liðsstyrk innanlands og Sigurpáll er fyrsti leikmaðurinn sem bætist í hópinn.

„Ég ætla að reyna að leita innanlands að leikmönnum til að fylla skörð þeirra. Síðan tek ég stöðuna aftur í janúar eða febrúar,\" sagði Ólafur Páll Snorrason, nýráðinn þjálfari Fjölnis, við Fótbolta.net í gær.

Nýjasti leikmaður meistaraflokks karla! Sigurpáll Melberg hefur skrifað undir 3 ára samning við félagið (staðfest) #FélagiðOkkar pic.twitter.com/ufjxXUpGa7

— Fjölnir FC (@Fjolnir_FC) October 31, 2017


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.