Fotbolti.net
31.10.18 - 18:00
Elvar Geir Magnússon

Gunnar Nielsen áfram hjá FH (Staðfest)

Gunnar Nielsen.

Gunnar Nielsen.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Færeyski landsliðsmarkvörðurinn Gunnar Nielsen hefur skrifað undir nýjan samning við FH til tveggja ára.

Gunnar, sem er 32 ára, hefur varið mark FH síðustu þrjú tímabil en hann varð Íslandsmeistari með liðinu 2016.

FH endaði í fimmta sæti Pepsi-deildarinnar á liðnu tímabili og missti af Evrópusæti. Hann lék alla 22 leiki liðsins í deildinni og fékk á sig 28 mörk.

Gunnar á 42 landsleiki fyrir Færeyjar en hann lék eitt tímabil með Stjörnunni 2015. Hann var á sínum tíma í herbúðum Manchester City og lék einn leik fyrir aðallið félagsins.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.