Fotbolti.net
31.10.18 - 06:00
Arnar Helgi Magnússon

Hákon Ingi til Vestra (Staðfest)

Hákon Ingi Einarsson skrifar undir samninginn.

Hákon Ingi Einarsson skrifar undir samninginn.

Canon

Mynd: Vestri.is

Hákon Ingi Einarsson er genginn til liðs við Vestra frá Kára. Þetta kemur fram á heimasíðu Vestra.
Hákon Ingi er fæddur árið 1995 og hefur spilað með Kára stærstan hluta síns ferils. Hann lék með Þór í Inkasso-deildinni sumarið 2016 og spilaði 17 leiki það sumar.

Hann lék 16 leiki með Kára í 2. deild í sumar.

Páll Sindri, bróðir Hákons gekk einnig til liðs við Vestra nú á dögunum.

„Við væntum mikils af þeim Skagabræðrum í sumar og hlakkar okkur til að sjá þá í fyrsta leik sínum með Vestra, en sá verður spilaður í nóvember," segir á heimasíðu Vestra.

Zoran Plazonić hefur einnig framlengt samnig sinn hjá Vestra en hann kom til liðsins fyrir tímabilið og þótti standa sig vel í sumar. Hann skrifar undir tveggja ára samning.
Zoran Plazonić spilar með Vestra næstu tvö tímabil.

Zoran Plazonić spilar með Vestra næstu tvö tímabil.

Canon

Mynd: Vestri.is

Zoran Plazonic í leik með Vestra.

Zoran Plazonic í leik með Vestra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.