31.10.18 - 08:30
Magnús Már Einarsson
Helgi Þór aftur í Víði (Staðfest) - Þrír aðrir semja

Helgi Þór Jónsson er kominn aftur í uppeldisfélag sitt Víði.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Víðir Garði hefur fengið framherjann Helga Þór Jónsson aftur í sínar raðir eftir dvöl hjá Njarðvík og Keflavík síðastliðið sumar.
Hinn 24 ára gamli Helgi er uppalinn í Víði en hann hefur skorað 31 mark í 72 leikjum með liðinu. Helgi skoraði tíu mörk þegar Víðir fór upp úr 3. deildinni 2016 og níu mörk í 2. deildinni í fyrra.
Í sumar skoraði Helgi þrjú mörk í þrettán leikjum með Njarðvík í Inkasso-deildinni fyrri hluta tímabils áður en hann fór í Keflavík þar sem hann skoraði eitt mark í fimm leikjum í Pepsi-deildinni.

Erik Oliversson tvítugur markmaður, fæddur í Þýskalandi, hefur einnig samið við Víði. Erik er uppalinn í Garðinum.
Brynjar Bergmann Björnsson og Nathan Ward hafa einnig framlengt samninga sína við Víðismenn sem enduðu í 9. sæti í 2. deildinni í sumar.
Hólmar Örn Rúnarsson tók við þjálfun Víðis á dögunum en Guðjón Árni Antoníusson, sem var áður þjálfari liðsins, verður aðstoðarþjálfari með honum.