Fotbolti.net
31.10.19 - 15:20
Magnús Már Einarsson

Arna Eiríks í Val (Staðfest)

Arna í leik með U19 ára landsliðinu.

Arna í leik með U19 ára landsliðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Varnarmaðurinn ungi Arna Eiríksdóttir hefur gengið til liðs við Íslandsmeistara Vals en hún samdi við félagið út árið 2023.
Arna sem fædd er árið 2002 kemur til félagsins frá HK/Víking. Hún á að baki 22 leiki fyrir meistaraflokk HK/Víkings og jafnframt 20 leiki fyrir yngri landslið Íslands og hefur spilað lykilhlutverk í vörn U19 ára landslið Íslands undanfarið ár.

„Ég er ótrúlega spennt fyrir komandi tímum og hlakka til að byrja að æfa með þessu frábæra liði. Framundan eru nýjar og krefjandi áskoranir sem ég hlakka til að kljást við í góðu umhverfi. Á sama tíma vil ég þakka uppeldis félagi mínu fyrir frábærar minningar innan sem utan vallar og vil þakka leikmönnum, þjálfurum og öðrum starfsmönnum fyrir frábæra tíma," sagði Arna.

Málfríður Anna og Hlín Eiríksdættur, eldri systur Örnu, hafa leikið með Val undanfarin ár.

„Við erum ótrúlega ánægð með að fá Örnu til liðs við okkur, Arna hefur verið í lykilhlutverki í vörn HK/Víkings undanfarin tvö ár og við hlökkum til að sjá hana vaxa hjá okkur," sagði Pétur Pétursson þjálfari Vals.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.